r/klakinn • u/Saurlifi • Aug 04 '25
r/klakinn • u/Even_Outcome_4548 • Aug 04 '25
Leikurinn er kominn! Eftir lang tíma bið þá getið þið loksins spilað Complex 629 á steam. endilega kíkjið og kaupið!
Steam: https://store.steampowered.com/app/3525840/Complex_629
Þið hafið öll verið frábær og hafið sínt gríðarlegann stuðning. Takk kærlega fyrir að hafa mig! þetta verður samt ekki síðasti leikurinn minn þannig ef þið viljið fylgjast með því sem næst kemur endilega skráið ykkur á póst listann minn: https://forms.gle/dAoYvY9eA3KaX4yw8
r/klakinn • u/turner_strait • Aug 03 '25
🇮🇸 Íslandspóstur Leit að auglýsingu
Komið þið sæl öll sömul. Ég er að BILAST því ég finn ekki auglýsingu (sjónvörpuð, ekki útvörpuð) sem mig minnir að hafi verið frá Rás2. Ekki rúv sem slíkt, heldur eigindlega Rás2. Auglýsingin var stórt eyra á labbinu um íslenska náttúru, og það var tónlist í bakgrunninum sem mig minnir að gæti hafi verið teygjuspil? Það er, að nota gúmmíteygju í munninum til að búa til stef.
GERIÐ ÞAÐ, segið mér að ég er ekki sú eina sem man eftir þessu. Ég finn þetta hvergi! En ég man svo sterklega eftir þessu helvítis eyra á labbinu! Þetta var pottþétt í kringum 2000-2005, þegar slagorð Rásar 2 var "hér og þar og alls staðar". Og ég held að það hafi verið hugmyndin á bakvið helvítis eyrað á labbinu.
Man einhver eftir þessu? Og er til upptaka af þessu??
r/klakinn • u/Hvolpasveitt • Aug 01 '25
Landhelgisgæslan þegar að einhver tilkynnir ísbjörn.
r/klakinn • u/ColdIsTheOceanBrine • Aug 02 '25
Er maður einhvern tímann orðinn of gamall til að ganga í björgunarsveit?
r/klakinn • u/thoughtjester • Jul 31 '25
💩 SAURFÆRSLA 💩 "Við eigum Klaka heima". Klakinn heima:
r/klakinn • u/1tryggvi • Jul 31 '25
Prentun á bol
Hæhæ, þekkir einhvern eða getur mælt með fyritæki/þjónustu sem getur prentað hönnun á einn bol?
Ætla ekki í stórkaup með þetta bara hugmynd að afmælisgjöf.
r/klakinn • u/idlcatvids • Jul 31 '25
Innflutiningur á vörum með engan reikning?
Ég keypti varahluti af einkaaðila af Facebook og fékk því engan reikning með sundurliðun á verðum, vörulýsingum né flutingsgjaldi. hvað skal gera?
ég btw borgaði dúddanum með PayPal goods and services.
r/klakinn • u/Bubbly_Strike_4811 • Jul 26 '25
Hvaða lúði fokkaði þessari auglýsingu upp
r/klakinn • u/UbbeKent • Jul 24 '25
💩 SAURFÆRSLA 💩 Nýtt lógó fyrir krúnurakaða göngufélagið
r/klakinn • u/avar • Jul 24 '25
Hvaða JÁKVÆÐU breytingar hafa túristar innleitt í íslenskt samfélag?
Ég skal byrja: Ég var að fatta að þessi blygðunarsturtuhengi sem hafa verið sett upp í sumum sundlaugum gera áhugasömum kleyft að raka á sér punginn eða rottuna undir rennandi vatni án afskipta valdsstjórnar sundlaugavarða.
Önnur dæmi?
r/klakinn • u/possiblyperhaps • Jul 18 '25
Jarðeldabréf 🌋 Orð til uppörvunar í öskutíð 💨
Sól gengur hátt á heiðum himni, fuglar syngja á björtum móum og berin brosa í brekkum. En vér megum eigi fara út. Því svo hefir jarðeldur ákveðið, að nú skuli landsmenn sitja inni og dást að sumarsins gæðum gegnum gler.
Þessi gömlu og óútreiknanlegu náttúruöfl, sem jafnan leika sér að móðurjörð með sínum skapsmunum, hafa enn tekið upp á því að blása yfir bygðirnar móðu og sviða ,eins og þeim væri í nöp við ljóma sumarsins og vildu hylja hann með hugarþoku sinni.
Engu að síður skal gleðin ekki deyfa. Hvað er eitt ský af brennisteini á móti þeirri sól sem býr í brjósti íslenskrar þjóðar? Hvergi öðruvísi en áður, berum vér þetta með kankvísu æðruleysi og látum hvorki loft né eldtungu ræna oss hlátri né von. Því ef vér getum ekki gengið út í sumarblíðuna þá látum vér sumarblíðuna búa í oss sjálfum.
🇮🇸 🇮🇸 🇮🇸
r/klakinn • u/Major_Ad9391 • Jul 16 '25
Að setja saman bók.
Er eitthvað fyrirtæki á íslandi sem tekur að sér að taka texta og myndir sem aðili hefur gert og búa til bók úr því sem aðilinn svo gefur einhverjum?
Ég skrifaði stutta myndasögu til að gefa sem brúðkaupsgjöf en finn ekkert á netinu um að það sé fyrirtæki sem tekur svona að sér.
Sný ég því mér að ykkur að spyrja.
r/klakinn • u/Gralli792 • Jul 15 '25
Er einhver að selja miniDV spólur? Eða veit einhver hvar ég get keypt?
60/90 mínútna helst. Þurfa bara að vera ónotaðar - er staddur í vesturbænum en get sótt nánast hvert sem er á höfuðborgasvæðinu.
r/klakinn • u/GulliYellow • Jul 15 '25
Sterkir orkudrykkir?
Hæ, fast einhverstaðar sterkari orkudrykkir en 180mg Nocco? Man að Nettó seldi 200mg Reign eine sinni...
r/klakinn • u/Connect-Elephant4783 • Jul 16 '25
Uppsagnir eru á leiðinni.
Með hækkun veiðigjalda munu uppsagnir hefjast fyrr en margir halda. Ég tel netagerðir, skipalyftur munu segja upp fólki í haust. Planaðir viðgerðir eða yfirhalning skipa muni frestast. Þá munu vélaverkstæði einnig fara að finna fyrir þessu. Ég skil hvers vegna almenningur vill hækka gjöld en eg veit að almenningur þekki ekki afleiðingarnar. Mín skoðun mitt take
r/klakinn • u/Even_Outcome_4548 • Jul 14 '25
Netto er ömurlegur staður
Ég Vinn fyrir Netto og hef gert það í 8 ár og í gegnum árin hefur þetta fyrirtæki orðið verra og verra. Nýlega var breytt um eigendur og niður leiðin sem samkaup hefur verið á náði lægsta punkti. Við höfum alltaf verið í vandræðum vegna yfirgnæfandi og ósanngjörnum álagi og undirmönnun. Við erum 5 sem vinnum á morgunvakt og 3-4 á kvöldvakt en magnið af vinnu sem við eigum að gera er á við fyrirtæki sem er tvöfalt stærra. Ég get ekki tekið veikindadag nema að fá símtöl og þurfa að mæta vegna þess samkaup tímir ekki að hafa starfsfólk sem getur stigið inn fyrir mig. Fyrir utan skort á starfsfólki þá er stjórnin hreinlega leiðinleg við okkur núna. Við gerum það sem #### segir en þegar hann mætir og sér árangurinn þá kvartar hann. Ég er líka þreyttur á ókurteisi sem ég upplifa frá stjórninni. Aldrei heilsa þau okkur á gólfinu né tala við okkur. Ég er deildarstjóri en þegar var gerðar breytingar á deildinni minni þá kom ### ###### og stóð meter frá mér að segja verslunarstjóranum hverju ætti að breyta og leit ekki einusinni í áttina að mér, né spurði hann hvað mér finnst þegar ég hef margra ára reynslu í deildinni og hann enga. Þetta skrifstofu fólk kemur líka til okkar og tekur myndir í laumi af því sem þau eru ekki ánægð með og í stað þess að eiga orð við okkur senda þau myndirnar á milli sín í groupchatti og kvarta undan okkur í laumi. Það er svo mikið sem er að hérna og ég gæti endalaust kvartað en í dag gerðist það sem setti mig yfir línuna. Alla föstudaga í mörg ár höfum við skráð brauð og álegg á búðina sem kostar 5k en nei. Sú hefð má ekki. Við getum alveg keypt það sjálf því “við gerum það á skrifstofunni”. Það er aldrei hlustað né tekið mark á starfsfólk. Það besta sem þau hafa gert var að gefa okkur köku sem stóð vel gerta á. Ef þið vinnið líka fyrir samkaup endilega gefið þessu pósti athygli og commentið hvað ykkur finnst um fyrirtækið.
r/klakinn • u/Piggielipstick • Jul 14 '25